
Ungmennafélagið Æskan
Æskuræktin
Aðgangskort í líkamsræktaraðstöðu Æskunnar.
- Verð
- 29.900 kr.
- Frítt fyrir yngri en 18 ára
- Tímabil
- 10 mánuðir
- Gildir
- nóv. 2026 – ágúst 2027
Svona virkar þetta
- Þú fyllir út skráninguna hér að neðan.
- Þú færð samninginn sendan til rafrænnar undirritunar í gegnum Taktikal.
- Gjaldkeri sendir þér reikning upp á 29.900 kr. Ef þú ert ekki þegar félagi í Æskunni bætist árgjald félagsins, 5.000 kr., við.
- Þegar samningurinn er undirritaður færðu lyklaaðgang í appi.
Yngri en 18 ára: Aðgangur og félagsaðild eru gjaldfrjáls. Iðkandi má aðeins æfa í fylgd með fullorðnum og forráðamaður undirritar samninginn.
Aðildar- og ábyrgðarsamningur – Æskuræktin
1. Aðilar
Samningur þessi er gerður milli Ungmennafélagið Æskan, kt. 581088-3109, Ráðhúsinu á Svalbarðseyri (hér eftir „Æskan“), og iðkanda sem tilgreindur er hér að ofan (hér eftir „iðkandi“). Sé iðkandi yngri en 18 ára er samningurinn jafnframt gerður við forráðamann iðkanda, sbr. 8. gr.
2. Gildistími og gjald
Samningurinn veitir iðkanda aðgang að líkamsræktaraðstöðu Æskunnar (Æskuræktin) á tímabilinu 1. nóvember 2026 – 31. ágúst 2027 (10 mánuðir). Samningurinn fellur sjálfkrafa úr gildi í lok tímabilsins.
Gjald fyrir tímabilið er 29.900 kr. fyrir iðkendur 18 ára og eldri. Iðkendur yngri en 18 ára greiða ekkert gjald, sbr. 8. gr.
Sé iðkandi ekki þegar félagi í Æskunni gerist hann félagi við undirritun samnings þessa og greiðir árgjald félagsins (5.000 kr.). Félagsaðild er gjaldfrjáls fyrir iðkendur yngri en 18 ára.
Gjöld greiðast samkvæmt reikningi sem gjaldkeri Æskunnar sendir. Aðgangur er virkjaður þegar samningur hefur verið undirritaður rafrænt.
Gjaldið er ekki endurgreitt þó iðkandi nýti ekki aðganginn, nema stjórn Æskunnar ákveði annað vegna sérstakra aðstæðna, svo sem langvarandi veikinda eða meiðsla.
3. Aðgangur og umgengni
Aðgangur er persónulegur og veittur með rafrænum lykli í appi. Iðkanda er óheimilt að lána aðgang sinn, hleypa öðrum inn í aðstöðuna eða halda dyrum opnum fyrir óviðkomandi.
Iðkandi skal ganga vel um aðstöðuna, ganga frá tækjum og lóðum eftir notkun, fylgja þeim umgengnisreglum sem Æskan setur hverju sinni og ganga úr skugga um að hurð sé lokuð og læst þegar farið er út.
4. Heilsufar og æfingar á eigin ábyrgð
Aðstaðan er að jafnaði ómönnuð og þar er hvorki þjálfari né starfsmaður til leiðbeiningar eða eftirlits. Iðkandi stundar allar æfingar alfarið á eigin ábyrgð.
Iðkandi staðfestir að vera við nægilega góða heilsu til að stunda líkamsrækt og að hafa enga þekkta sjúkdóma eða kvilla sem gera æfingar hættulegar. Leiki vafi á um heilsufar skal iðkandi leita ráða hjá lækni áður en æfingar hefjast. Iðkandi ber ábyrgð á að kynna sér rétta notkun tækja og búnaðar áður en hann er notaður.
5. Takmörkun ábyrgðar
Æskan, stjórn hennar, starfsmenn og sjálfboðaliðar bera enga ábyrgð á slysum, meiðslum eða öðru líkams- eða heilsutjóni sem iðkandi verður fyrir í aðstöðunni eða við notkun tækja og búnaðar hennar. Iðkandi afsalar sér hér með rétti til að krefja Æskuna um bætur vegna slíks tjóns.
Æskan ber jafnframt enga ábyrgð á tjóni á persónulegum munum iðkanda eða hvarfi þeirra.
Framangreind takmörkun ábyrgðar gildir ekki um tjón sem rekja má til ásetnings eða stórfellds gáleysis Æskunnar, enda verður ábyrgð á slíku tjóni ekki takmörkuð lögum samkvæmt.
Iðkanda er bent á að kanna hvort heimilistrygging eða frítímaslysatrygging hans hjá tryggingafélagi nái til slysa við líkamsrækt.
6. Ábyrgð iðkanda á skemmdum
Iðkandi ber fulla fjárhagslega ábyrgð á tjóni sem hann veldur á húsnæði, tækjum, búnaði eða öðrum eigum Æskunnar, hvort sem tjónið verður af ásetningi eða gáleysi. Sama gildir um tjón sem einstaklingar sem iðkandi hleypir inn í aðstöðuna valda.
Æskunni er heimilt að krefja iðkanda um greiðslu kostnaðar við viðgerð eða endurnýjun þess sem skemmist. Eðlilegt slit vegna venjulegrar notkunar telst ekki tjón í þessum skilningi.
Iðkandi skal tilkynna um tjón eða bilun án tafar á netfangið aeskan@umse.is.
7. Lokun aðgangs
Brjóti iðkandi gegn ákvæðum samnings þessa eða umgengnisreglum, eða greiði hann ekki reikning á gjalddaga, er Æskunni heimilt að loka aðgangi iðkanda tafarlaust og án endurgreiðslu.
8. Iðkendur yngri en 18 ára
Iðkendur yngri en 18 ára við upphaf samningstíma greiða hvorki aðgangsgjald né árgjald.
Iðkandi yngri en 18 ára má aðeins nota aðstöðuna í fylgd með fullorðnum einstaklingi, 18 ára eða eldri, sem er viðstaddur allan tímann. Óheimilt er að hleypa iðkanda yngri en 18 ára inn án fylgdar, og brot á þessu ákvæði getur leitt til lokunar aðgangs skv. 7. gr.
Forráðamaður undirritar samninginn fyrir hönd iðkanda og ber ábyrgð á skuldbindingum hans samkvæmt samningi þessum, þar á meðal á tjóni skv. 6. gr. Forráðamaður staðfestir jafnframt að hafa farið yfir efni samningsins með iðkanda.
9. Persónuvernd
Æskan vinnur með nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang og símanúmer iðkanda (og forráðamanns eftir atvikum) í þeim tilgangi að halda utan um aðild, innheimtu og aðgangsstýringu. Upplýsingarnar eru aðeins afhentar þjónustuaðilum sem koma að innheimtu, aðgangskerfi og rafrænni undirritun, og eru ekki varðveittar lengur en nauðsyn krefur.
10. Samþykki
Með rafrænni undirritun sinni staðfestir iðkandi, eða forráðamaður fyrir hans hönd, að hafa lesið samning þennan, skilið efni hans og samþykkt hann að öllu leyti.